Að sögn sænska sérfræðingsins Mats Josefsson skortir nokkuð á að ríkisvaldið hafi tekið við sér sem núverandi eigandi bankanna.
Þetta kom fram á blaðamannafundi sem nú stendur yfir í Þjóðmenningarhúsinu.
Í erindi sínu fór Josefsson, sem leiðir nefnd um endurreisn bankakerfisins, yfir stöðu mála. Hann sagði að ríkisvaldið hefði verið of „passíft" hingað til sem eigandi bankanna. Þetta tengdist því sem hann taldi vera óljóst starfsumhverfi bankanna sem meðal annars birtist í því að ekki er ljóst hver rekstrarniðurstaða þeirra sé né í hvað hún stefnir.
Það sagði Josefsson að væri áhyggjuefni. Um leið taldi hann augljóst að þeir yrðu að skera niður starfsemi sína.
Josefsson sagði brýnt að ríkisstjórnin taki við hlutverki eigenda bankanna og láti bankana vita að viðskipti eigi ekki að ganga fyrir sig með sama hætti og áður.
Josefsson var ráðinn til að aðstoða ríkisstjórnina við að takast á við vanda bankakerfisins og hefur nú verið skipaður formaður nefndar um endurreisn fjármálakerfisins. Nefndin ber ábyrgð á þróun heildarstefnu um endurbyggingu bankakerfisins, framkvæmd hennar og samræmingu.
Í nefndinni sitja fulltrúar allra viðeigandi aðila sem koma að meðferð bankamála.