Forsætisráðuneytið hefur ráðið til tímabundinna starfa Mats Josefsson, sænskan bankasérfræðing.

Mats tekur við þeirri stöðu sem Ásmundur Stefánsson hefur gegnt við uppbyggingu bankakerfisins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu.

Þar kemur fram að Ásmundur Stefánsson hefur fram að þessu sinnt þessu starfi en þegar hann var skipaður formaður bankastjórnar Landsbankans var ákveðið að hann myndi ekki gegna því áfram.

„Þann tíma sem hann hefur sinnt báðum störfum hefur þess að sjálfsögðu verið gætt að hann hafi ekki haft aðgang að gögnum sem tengjast hinum bönkunum,“ segir í tilkynningunni.

Ásmundur hefur að auki haft yfirumsjón með þeim margvíslegu starfshópum sem starfað hafa í kjölfar bankahrunsins fyrir hönd forsætisráðherra og verið tengiliður milli þeirra innbyrðis og gagnvart forsætisráðherra og ríkisstjórn,

„Forsætisráðuneytið vill þakka Ásmundi sérstaklega fyrir afar vel unnin störf á erfiðum tíma,“ segir í tilkynningunni.

Þá kemur fram að Mats Josefsson er reynslumikill bankamaður. Hann starfaði í 13 ár hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum en var áður aðstoðarforstjóri sænska fjármálaeftirlitsins og þar á undan forstöðumaður í sænska seðlabankanum.

Hann stýrði eftirliti með bankastarfsemi í Svíþjóð á árunum 1990 – 1994 á tímum bankakreppunnar þar og öðlaðist þannig einstaka reynslu sem vonast er til að nýtist Íslendingum við þær aðstæður sem nú eru uppi.

Josefsson lék sömuleiðis stórt hlutverk í milligöngu AGS í uppbyggingu bæði í Tyrklandi og Tælandi eftir bankakreppu sem þau lönd glímdu við frá því um og eftir aldamótin

Í tilkynningunni  kemur fram að starf þetta er skilgreint í 5. grein samkomulagsins við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (AGS) þar sem segir:

„Ákveðið skipulag er komið á við skil yfirteknu bankanna og leiðir til að hámarka heimtur eigna með gagnsæjum hætti. Stefna okkar að þessu leyti hefur verið útfærð nánar að undanförnu. Virtur bankasérfræðingur var skipaður til að stýra endurskipulagningu bankanna. Sérfræðingurinn starfar á vegum forsætisráðherra og ber ábyrgð á að þróa, innleiða og skýra frá heildstæðri aðgerðaáætlun um endurskipulagningu bankanna. Til að samræma stefnu og aðgerðir stjórnvalda hefur verið skipuð nefnd sem bankasérfræðingurinn stýrir og í eiga sæti fulltrúar frá forsætisráðuneyti, Fjármálaeftirliti, Seðlabanka, fjármálaráðuneyti, utanríkisráðuneyti og viðskiptaráðuneyti.”