Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra hefur ráðið Matthías Pál Imsland aðstoðarmann sinn í velferðarráðuneytinu.

Matthías er 39 ára gamall, fæddur 27. janúar 1974. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Laugarvatni, BA prófi frá Háskóla Íslands í stjórnmálafræði og síðar MS prófi frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð. Þá hefur hann stundað nám í viðskiptafræði við Háskóla Íslands og stjórnunarnámi við North Park University í Chicago í Bandaríkjunum.

Matthías var kosningastjóri Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 2013. Matthías var um tíma framkvæmdastjóri rekstrarsviðs flugfélagsins WOW-air og fyrir stofnun þess var hann forstjóri Iceland Express.

Á pólitískum vettvangi hefur Matthísas verið formaður Félags ungra Framsóknarmanna í Reykjavík, formaður kjördæmasambandsins í Reykjavík, í stjórn Sambands ungra Framsóknarmanna, í miðstjórn Framsóknarflokksins og í landsstjórn flokksins.

Matthías Páll Imsland er í sambúð með Sunnevu Torp. Þau eiga fimm börn á aldrinum fjögurra til 12 ára; þrjá drengi og tvær stúlkur.