Matthías Imsland er framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Wow air en hann er einnig einn af eigendum félagsins.

Matthías var áður forstjóri Iceland Express til margra ára en hann lét af störfum þar í september síðastliðnum. 85% hlutur Wow air er í eigu fjárfestingarfélagsins Títan, sem er í eigu Skúla Mogensen, 5% hlutur er í eigu Baldurs Baldurssonar, forstjóra Wow air, og 5% hlutur er í eigu Matthíasar.