Innan skamms verður hægt að gæða sér á stórum samlokum, salötum og súpum í verbúðunum á Grandagarði. Með vínglasinu verða síðan bornir fram litlir ítalskir réttir. Íris Ann Sigurðardóttir og Lucas Keller vinna nú hörðum höndum að opnun staðarins í lok september.

VB Sjónvarp fékk að líta inn í verbúðirnar.