Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur úthlutað um 577 milljónum króna úr Matvælasjóði en alls hljóta 53 verkefni af þeim 117 umsóknum sem bárust styrk. Matvælasjóður veitir styrk í fjórum styrkjaflokkum: Báru, Keldu, Afurð og Fjársjóði.

„Ég hef séð kraftinn sem býr í framleiðendum matvæla hér á landi og úthlutun úr Matvælasjóði er mikilvægur liður í því að styðja við nýsköpun í matvælaframleiðslu. Það gleður mig sérstaklega að sjá að hlutföll á milli kynja eru nær jöfn,“ segir Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra.

Bára styrkir verkefni á hugmyndastigi og geta styrkþegar verið fyrirtæki sem stofnuð eru á síðustu fimm árum. Einnig frumkvöðlar sem vilja þróa hugmynd, hráefni eða aðferðir sem tengjast íslenskri matvælaframleiðslu.

Kelda styrkir verkefni sem miða að því að afla nýrrar þekkingar sem styður við markmið sjóðsins um nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskrar matvælaframleiðslu.

Afurð styrkir verkefni sem komin eru af hugmyndastigi en eru þó ekki tilbúin til markaðssetningar. Styrkveitingar miða að því að gefa styrkþegum tækifæri til að móta og þróa afurðir úr hráefnum sem falla til við matvælaframleiðslu og stuðla þar með að verðmætasköpun.

Fjársjóður styrkir verkefni sem hafa það markmiði að styrkja markaðsinnviði og stuðla að markaðssókn afurða tengdum íslenskri matvælaframleiðslu.

Sjóðnum er einnig heimilt að styðja við vöruþróun og markaðssókn á erlendum mörkuðum. Sjóðurinn fylgir eftir heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Í þessum tilgangi styrkir sjóðurinn verkefni og rannsóknir einstaklinga og lögaðila.