Sérfræðingar Capacent gera ráð fyrir því að að vísitala neysluverðs hækki um 0,24% í júní. Ef að spáin gengur eftir mun 12 mánaða verðbólga hækka úr ríflega 1,7% í 1,8% en vísitala neysluverðs hækkaði um 0,18% í júní í fyrra. Gera sérfræðingarnir ráð fyrir því að matvælaverð lækki um 1,5% sem lækkar vísitölu neysluverðs um 0,2%. Samkvæmt lauslegri könnun Capacent hefur verið umtalsverð lækkun á matvælun.
Þegar litið er til fasteignamarkaðsins sem hefur vegur þyngst í útreikningum á vísitölu neysluverðs þá gera sérfræðingarnir ráð fyrir hressilegri hækkun fasteignaverðs eins og hefur verið uppi á teningnum síðustu mánuði. Í spánni er gert ráð fyrir að reiknuð húsaleiga sem ígildi fasteignaverðs í vnv hækki um 2,5% sem jafngildir nærri 35% hækkun fasteignaverðs á ársgrundvelli.
Ef fasteignaverð er tekið út fyrir sviga er fátt sem hækkar í verði. Þó hækkar þó flugfargjöld og gisting. Samkvæmt könnun Capacent hafa flugfargjöld hækkað um 10% sem hefur 0,14% áhrif á vísitöluna og hefur gisting hækkað um 2,5%, en hefur það sáralítil áhrif á vísitöluna.
Capacent gerir hins vegar ráð fyrir því að verð á öðrum innfluttum vörum lækki. Í þeim lið er fatnaður, raftæki, húsgögn, verkfæri og fleira. Lækkun á þessum vörum mun leiða til um 0,16% lækkun á vísitölu neysluverðs. Hér fyrir neðan má sjá mynd af hækkun einstakra undirliða vísitölu neysluverðs sem Capacent tók saman.