Vörukarfa ASÍ hækkaði mest í lágvöruverðsversluninni Kaskó, um 3,4% á milli verðmælinga í fyrstu og annarri vikunni í júní (viku 23 og 24).

Næstmest hækkun var í Nóatúni þar sem verð körfunnar hækkaði um 1,5%. Í báðum stóru lágvöruverðskeðjunum, Bónus og Krónunni lækkaði verðið á vörukörfunni um tæp 2% á milli vikna.

Þetta kemur fram í nýrri verðkönnun ASÍ sem birt er á vef samtakanna.

Þá kemur fram að verðhækkun körfunnar í Kaskó um 3,4% má að mestu rekja til hækkana á kjötvörum í vörukörfunni á milli vikna en einnig til hækkunar á liðnum ýmsar matvörur.

„Lækkun á verði vörukörfunnar um 1,9% í Bónus og Krónunni er að stærstum hluta tilkomin vegna lækkana á kjötvörum sem er að finna í vörukörfunni en einnig lækka grænmeti, ávextir og drykkjarvörur á milli vikna,“ segir í skýrslu ASÍ.

Í Nóatúni þar sem vörukarfan hækkaði um 1,5% á milli vikna er hækkun á kjötvörum helsta skýringin að mati ASÍ en þar hækkuðu brauð og kornvörur og drykkjarvörur í körfunni einnig nokkuð.

Verðlagseftirlitið mælir breytingar á verði vörukörfu sem getur endurspeglað almenn innkaup meðalheimilis. Vörukarfa ASÍ inniheldur allar almennar mat- og drykkjarvörur, t.d. brauðmeti, morgunkorn, pasta, kjöt, fisk, grænmeti, ávexti, pakkavörur, kaffi, gos, safa, auk hreinlætis- og snyrtivara. Við samsetningu vörukörfunnar voru hafðar til hliðsjónar vogir Hagstofunnar sem notaðar eru til útreiknings á vísitölu neysluverðs.

Vogirnar segja til um hversu stór hluti tilteknir vöruflokkar eru af neyslukörfu meðalheimilis. Verðbreytingar eru skoðaðar í eftirfarandi verslanakeðjum: Í lágvöruverðsverslunum Bónus, Krónunni, Nettó og Kaskó og í almennu matvöruverslununum Hagkaupum, Nóatúni og Samkaupum-Úrval og Klukkubúðunum 10-11, 11-11 og Samkaupum-Strax.

Þess ber að geta að hér eru einungis birtar upplýsingar um verðbreytingar í verslanakeðjunum á milli vikna. Ekki er því um beinan verðsamanburð að ræða þ.e.a.s. hvar ódýrustu vörukörfuna var að finna. Einnig er rétt að athuga að skoðuð eru þau verð sem eru í gildi í verslununum á hverjum tíma og geta tilboð á einstaka vöruliðum því haft áhrif á niðurstöðurnar.