Kanadíska jarhitaorkufyrirtækið Magma Energy Corp, sem nú er á góðri leið með að ná yfirráðum í HS Orku á Suðurnesjum, á afar stutta sögu að baki. Það var stofnað í janúar 2008.

Stærsti hluthafinn er Ross Beaty sem ásamt Sitka Foundation á 48% í Magma Energy.

Ross Beaty, forstjóri og stofnandi Magma, er jarðfræðingur að mennt og á afar merkilega sögu í gull-, silfur- og koparnámuiðnaði. Í gullbransanum er honum lýst sem opinni peningaspilavél „broken slot machine“ vegna ákveðinnar viðleitni sinnar að gera hluthafa fyrirtækja sinna ríka.

Hann á einnig fyrirtæki sem vinna að frumrannsóknum á jarðhita í Suður- Ameríku og Bandaríkjunum.

Ross Beaty er fæddur í Vancouver í Kanada árið 1951og er kvæntur og fimm barna faðir. Hann er víðförull maður og hefur starfað í 45 löndum og talar ensku, frönsku, spænsku og eitthvað í rússnesku, þýsku og ítölsku.