Don McCarthy, fyrrverandi eigandi Rubicon Retail sem nýlega sameinaðist Mosaic Fashions, mun líklega taka sæti í stjórn House of Fraser ef af yfirtöku Baugs á bresku stóverslunarkeðjunni verður, segir í frétt The Sunday Telegraph.

Blaðið segir að McCarthy hafi átt viðræður við Baug um að taka við starfi stjórnarformanns House of Fraser. Einnig er talið að Baugur hafi haft samband við Philip Mountford, forstjóra herrafataverslunarkeðjunnar Moss Bros, um að taka við starfi forstjóra.

Baugur vinnur nú að áreiðanleikakönnun, sem talið er að muni ljúka um miðjan næsta mánuð, en fyrirtækið hefur gert óformlegt kauptilboð í House of Fraser að virði 351 milljón punda, sem samsvarar um 48 milljörðum króna.