Einhver sem hafði aðgang að Twitter síðu McDonald's gerði atlögu að Donald Trump forseta Bandaríkjanna í morgun. Í tuttugu mínútur var eftirfarandi tíst fest efst á Twitter síðu skyndibitakeðjunnar:

„@realDonaldTrump You are actually a disgusting excuse of a President and we would love to have @BarackObama back, also you have tiny hands,“ sem gæti útlagst sem: „Donald Trump, þú ert viðbjóðsleg afsökun forseta og við myndum elska það að fá Barack Obama aftur, auk þess ertu með pínulitar hendur.“ Þetta kemur meðal annars fram í frétt Politico .

1.000 manns endurtístu þessum skilaboðum áður en því var eytt nokkrum mínútum síðar. McDonald's hefur tilkynnt að nú hefji fyrirtækið rannsókn á því hvað gerðist í ósöpunum. Að sögn McDonald's var átt við Twitter aðgang skyndibitakeðjunnar. McDonald's er í miklu uppáhaldi hjá forsetanum og hann sagði meðal annars að hann hafi haldið upp á sigurinn í forkosningunum með því að fá sér einn BigMac.