Rannsókn Hagstofu Íslands á útgjöldum heimilanna árin 2000-2002 leiðir í ljós að meðalneysluútgjöld heimilis á ári eru um 3,5 milljónir króna, eða um 290 þúsund krónur á mánuði.

Í frétt frá Hagstofunni um niðurstöður rannsóknarinnar kemur fram að meðalheimilið telur 2,68 einstaklinga samanborið við 2,82 einstaklinga í neyslukönnun árið 1995. Í úrtaki voru um 3.500 heimili, 1.907 þeirra tóku þátt í rannsókninnni og var svörun því um 55%.

Nánar er greint frá niðurstöðum rannsóknarinnar í Hagtíðindum sem Hagstofan gefur út. Þar eru niðurstöður sundurliðaðar eftir búsetu og heimilisgerð auk þess sem heildarniðurstöður eru bornar saman við neyslukönnunina 1995. Þá er í heftinu að finna ýmsar upplýsingar um heimilin í landinu, svo sem um húsnæði, tækjaeign, áskriftir o.fl.