Fjármálaráðuneytið ákveður staðgreiðsluhlutfall hvers árs og er það samtala af tekjuskattshlutfalli samkvæmt lögum um tekjuskatt og útsvarshlutfalli eins og það er að meðaltali samkvæmt ákvörðunum sveitarstjórna. Tekjuskattshlutfall á árinu 2005 verður 24,75% sem er lækkun um 1% frá yfirstandandi ári. Meðalútsvar á árinu 2005 samkvæmt fyrirliggjandi ákvörðunum sveitarstjórna verður 12,98% en þetta hlutfall er 12,83% á yfirstandandi ári. Meðalútsvarshækkun milli ára er því 0,15%.

Staðgreiðsluhlutfall á árinu 2005 verður 37,73% samanborið við 38,58% á þessu ári. Lækkun á staðgreiðsluhlutfalli milli ára verður því 0,85%.

Sveitarfélögin geta ákveðið útsvar á bilinu 11,24% til 13,03%. Af 101 sveitarfélögum ætla 71 þeirra að innheimta hámarksútsvar en 5 sveitarfélög verða með lágmarksútsvar. Vegna sameiningar sveitafélaga fækkar þeim um 3 frá fyrra ári.

Áætlað er að á árinu 2005 innheimtist um 138,4 milljarðar króna fyrir ríki og sveitarfélög með staðgreiðslu opinberra gjalda. Þar af renna um 70,5 milljarðar króna til sveitarfélaga en um 67,9 milljarðar króna til ríkissjóðs.