Velta á fasteignamarkaði dróst saman um 28% milli vikna en hafði í vikunni á undan aukist um 10% á milli vikna samkvæmt tölum frá Fasteignamati ríkisins (FMR).

Á myndinni hér til hliðar má sjá breytingu á fjögurra vikna meðalveltu á milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu fjögurra vikna og breytinga á henni milli ára.

Í vikunni sem leið nam veltan um 1,6 milljarði króna en í fyrri viku nam veltan um 2,2 milljörðum króna.

Meðalvelta á hvern samning var 28,7 milljónir og minnkar milli vikna en í síðustu viku var meðalvelta á hvern samning um 44 milljónir sem var talsvert yfir meðaltali. Meðaltal á árinu er 34 milljónir á hvern samning

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í vikunni sem leið var 56 en voru 51 í vikunni þar áður. Þinglýstir samningar eru að meðaltali 79,7 á viku frá áramótun.

Á ársgrundvelli hefur velta á fasteignamarkaði dregist saman um 70% og gefur það heildstæðari mynd af fasteignamarkaði. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.