Hlutverk sjóðsins er að styrkja uppbyggingu innviða þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað og þar með samfélög og stoðir atvinnulífs á þeim svæðum.

Stjórnina skipa þau:

Haraldur Líndal Haraldsson, formaður, skipaður án tilnefningar

Álfheiður Ingadóttir, tilnefnd af forsætisráðherra,

Kjartan Dige Baldursson, tilnefndur af fjármála-og efnahagsráðherra.

Stjórn Fiskeldissjóðs hefur yfirumsjón með rekstri hans.

Tekjur sjóðsins eru hlutfall af því gjaldi sem rekstrarleyfishafar fiskeldisstöðva í sjó greiða í ríkissjóð samkvæmt lögum nr. 89/2019. Stjórn sjóðsins mun fljótlega auglýsa eftir umsóknum frá sveitarfélögum um styrki úr sjóðnum til verkefna sem eru til þess fallin að byggja upp innviði og þjónustu á svæðum þar sem fiskeldi í sjókvíum er stundað. Áætlað er að sjóðurinn hafi 113 milljónir króna til umráða á árinu 2021.