Hagamelur ehf., félag í eigu Árna Haukssonar og Hallbjörns Karlssonar, á 1,06% hlut í Tryggingamiðstöðinni. Er félagið 20. stærsti hluthafinn.

Félagið er á nýjum lista yfir 20 stærstu eigendur TM. Sá hlutur er 242 milljóna að markaðsverðmæti.

Hagamelur hefur jafnframt átt hlut í VÍS um nokkurt skeið og er Hallbjörn Karlsson stjórnarformaður félagsins.

Sá hlutur er öllu stærri eða 5,23% og er markaðsverðmæti hans 1,1 milljarður. Hagamelur er fjórði stærsti hluthafi VÍS.