Meðalaldur starfsmanna fjármálafyrirtækja í lok síðasta árs var 44 ár en var 42 ár í upphafi ársins 2009 samkvæmt tölum frá Samtökum fjármálafyrirtækja.

Starfsfólk í fjármálafyrirtækjum í lok síðasta ár var 1% færra en í lok ársins 2009. 62% starfsmanna fjármálafyrirtækja eru konur og 38% karlmenn og samtals starfa nú 4.620 manns hjá fjármálafyrirtækjum.