Heildarlaunagreiðslur Samtaka verslunar og þjónustu námu rúmlega 43 milljónum króna á árinu 2011 en hjá samtökunum starfa fjórir starfsmenn. Meðallaunakostnaður á starfsmann nemur tæplega 11 milljónum króna.

Heildartekjur félagsins nema 78 milljónum. Annar rekstrarkostnaður var tæplega 27 milljónir króna. SVÞ högnuðust um rúmlega fimm milljónir á árinu 2011. Aðildarfélög þurfa að greiða 0,5% af heildarlaunagreiðslum sínum til að vera aðili að samtökunum.

Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri SVÞ.
Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri SVÞ.
Andrés Magnússon er framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu.