Í nýrri kjarakönnun sem gerð var meðal viðskipta- og hagfræðinga kemur fram að meðaltals mánaðarlaun þeirra eru 860.000 krónur en miðgildi er 770.000. Þetta kemur fram í í blaðinu Hagur, tímarits viðskipta- og hagfræðinga en blaðinu er dreift með Viðskiptablaðinu í dag.
Fram kemur að þessi munur á meðaltali launa og miðgildi sýni að nokkrir mjög launaháir einstaklingar dragi meðaltal launa upp. Miðgildi grunnlauna var 684.000 og meðaltal grunnlauna var 766.000 krónur. Einungis 19% þeirra sem tóku þátt í könnuninni fékk greitt yfirvinnu þegar könnunin var gerð sem sýnir að meginlaun viðskipta- og hagfræðinga eru föst mánaðarlaun.
Mesta launahækkunin á neðsta menntunarstiganum
Á milli ára hækka laun þeirra sem eru með þrjú neðslu menntunarstigin, þ.e. BS/BA, Cand. Oecon og Mastersnám, um 8-11%. Laun hjá þeim sem hafa doktosgráðu hækka um 4% milli ára og laun þeirra sem hafa MBA hækka um 2% milli ára.