Velta á fasteignamarkaði minnkaði lítillega á milli vikna í síðustu viku samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá.

Velta á fasteignamarkaði var í vikunni 2.914 milljónir króna, samanborið við 2.928 milljónir króna í vikunni áður. Veltan dregst því saman um 18% milli vikna en hafði í vikunni á undan aukist um 20% á milli vikna.

Fjögurra vikna meðalvelta dregst þó nokkuð saman á milli vikna og nemur nú 2.565 milljónum króna. Þá hefur fjögurra vikna meðalvelta dregist saman um 410 milljónir króna frá áramótum.

© vb.is (vb.is)

Á myndinni hér að ofan má sjá breytingu á fjögurra vikna meðalveltu sl. 18 mánuði. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu fjögurra vikna og breytinga á henni milli ára. Fjögurra vikna meðalvelta hefur þó aukist um 78% á milli ára.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga var 86 í vikunni sem leið, líkt og í vikunni áður. Meðalupphæð á hvern samning var í vikunni 25,7 milljónir króna. Meðalvelta á hvern samning var á síðasta ári 29,4 milljónir króna.

Meðalvelta á viku frá áramótum eru tæpir 2,8 milljarðar króna en á sama tíma hefur 87 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku.

Á ársgrundvelli hefur velta á fasteignamarkaði aukist um 67% og gefur það heildstæðari mynd af fasteignamarkaði. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.