Hagnaður einkahlutafélagsins í kringum hljómsveitina Of Monsters and Men var 37,8 milljónir á síðasta ári. Þetta kemur fram í ársreikningi félagsins.

Félagið heitir Skrímsl ehf. og var ákveðið á síðasta aðalfundi félagsins í apríl að greiða út 50 milljónir í arð. Allir fimm meðlimir sveitarinnar eiga 20% hlut í félaginu.

Eigið fé félagsins eftir arðsúthlutun er 111 milljónir króna.

Hljómsveitin er á tónleikaferðalagi um Evrópu og spilar í Berlín í kvöld. Fyrir þá sem ekki þekkja hljómsveitina geta skoðað myndbandið hér að neðan.