Í dag var undirritað samkomulag um aukningu hlutafjár í Travel Service, dótturfélagi Icelandair Group í Tékklandi.

Meðeigendur Icelandair Group, Unimex Group og Roman Vik skrá sig fyrir nýju hlutafé í félaginu og auka hlut sinn úr 34% í 49,9%.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair Group en með með hlutafjáraukningunni minnkar hlutur Icelandair Group úr 66% í 50,1%. Hækkunin hefur engin áhrif á rekstur Icelandair Group en eigið fé lækkar um 300 milljónir króna.

„Með þessari hlutafjáraukningu er verið að styrkja stöðu Travel Service,“ segir Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandair Group í tilkynningu til Kauphallarinnar.

„Rekstur félagsins hefur gengið vel á þessu ári og betur en áætlanir gerðu ráð fyrir. Við núverandi aðstæður í alþjóðlegum flugrekstri skapast ýmis tækifæri til vaxtar sem félagið er að skoða. Með hlutafjáraukningunni er félagið betur í stakk búið til að styrkja stöðu sína á markaðnum í nánustu framtíð.“