Bandaríski sjónvarpsfréttamaðurinn, Megyn Kelly, sem nýverið var rekin frá sjónvarpsstöðinni NBC fær um 30 milljónir Bandaríkjadollara eða sem samsvarar 3,7 milljörðum íslenskra króna í bætur. Þetta kemur fram í frétt frá Wall Street Journal .

Kelly var rekin frá NBC í kjölfar umdeildra ummæla en hún starfaði lengst af sem fréttamaður hjá Fox News. Eftir að hún yfirgaf Fox landaði hún 69 milljón dollara samning við NBC News.

Megyn Kelly sagði í þætti sínum að hún áttaði sig ekki á því hvað væri móðgandi við „Blackface" hrekkjavökubúninginn. Í kjölfarið var tökum á þáttum hennar „Megyn Kelly Today" hætt.