Ólíkt því sem ætla mætti af því að horfa á kvikmyndir þokkagyðjunnar Marilyn Monroe þá var hún merkilega lítið fyrir veraldleg gæði og glys. Kemur þetta fram í frásögn Simon Doonan, sem var fenginn til að sjá um útlitslega framsetningu á munum úr dánarbúi Monroe, sem seldir voru á uppboði fyrir skömmu. Segir hann að miklu meira hafi verið af frumútgáfum af áhugaverðum bókmenntum en dýrum fatnaði. Þau föt sem Monroe átti voru greinilega mikið notuð og sum þeirra voru slitin. Eini kartgripurinn sem var einhvers virði var trúlofunarhringurinn sem hún fékk frá Joe Dimaggio, annað var verðlaust glingur.