Vöruskipti við útlönd voru hagstæð um 4,8 milljarða króna í desember, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Gangi það eftir gæti afgangur af vöruskiptin allt árið í fyrra numið 69,6 milljörðum króna. Í desember árið 2012 nam afgangur af vöruskiptum tæpum 3,8 milljörðum króna.

Fram kemur á vef Hagstofunnar að verðmæti útflutnings nam 43,6 milljörðum króna í desember. Á sama tíma voru vörur fluttar inn fyrir 38,8 milljarða króna.