Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum júlímánuði, metinn á föstu verði, var 1,5% minni en í júlí 2008, þrátt fyrir meiri afla í tonnum talið. Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 8,4% miðað við sama tímabil 2008, sé hann metinn á föstu verði, samkvæmt tölum Hagstofu Íslands.

Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2007. Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.

7 þúsund tonnum meiri heildarafli

Aflinn í júlí 2009 var 160.152 tonn samanborið við 153.463 tonn í sama mánuði árið áður.

otnfiskafli jókst um 16.000 tonn frá júlí 2008 og nam rúmum 33.000 tonnum. Þar af var þorskaflinn rúm 9.000 tonn, sem var tæpum 3.000 tonnum meira en árið áður. Ýsuaflinn nam rúmum 5.000 tonnum sem er  tæpum 1.300 tonnum meiri afli en í júlí 2008. Ufsaaflinn dróst saman um tæp 3.000 tonn á milli ára og nam um 6.000 tonnum en  2.600 tonn veiddust af karfa, sem er um helmingi minna en í júlí 2008.

Afli uppsjávartegunda nam tæpum 123.000 tonnum sem er um 4.000 tonnum meiri afli en í júlí 2008. Síldaraflinn jókst milli ára um tæp 9.000 tonn og nam tæpum 64.000 tonnum.

Þrátt fyrir mikla umræðu um mikla makrílgengd við landið, þá veiddist tæpum 5.000 tonnum minni makrílafli nú í júlí en á sama tíma 2008. Eða um 59.000 tonn á móti um 64.000 tonnum í júlí í fyrra.

Flatfiskaflinn var rúm 3.000 tonn í júlí og jókst um 1.072 tonn frá fyrra ári. Skel- og krabbadýraafli nam 1.215 tonnum samanborið við 2.072 tonna afla í júlí 2008.