Viðskiptahalli var 31 milljarðar króna á þriðja fjórðungi ársins samanborið við 48,5 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi að því er kemur fram í yfirliti Seðlabankans. Meginskýring á þessum bata er viðsnúningur á jöfnuði þáttatekna um 16,5 milljarða króna. Á gjaldahlið jafnaðarins varð lækkun um 20,5 milljarða króna.

Munar þar mestu að engar arðgreiðslur til erlendra aðila voru skráðar á fjórðungnum en þær höfðu verið nær 20 milljarðar á öðrum ársfjórðungi, enda falla þær jafnan til á þeim fjórðungi. Endurfjárfesting var 10 milljarðar króna minni en á öðrum ársfjórðungi. Hins vegar jukust önnur vaxtagjöld. Tekjur voru 4 milljarðar króna minni en á öðrum ársfjórðungi sem skýrist einkum af því að engar arðgreiðslur til innlendra aðila voru skráðar á fjórðungnum samanborið við rúma 13 milljarðar króna á öðrum ársfjórðungi. Á móti kom að hækkun varð á endurfjárfestingu og öðrum vaxtartekjum.