Tæplega 60% breskra fyrirtækja ætla að auka útgjöld til markaðssetningar á næstu tólf mánuðum, ef marka má niðurstöður nýrrar könnunar.
Haft var samband við markaðsstjórnir tvö þúsund breskra fyrirtækja.
57,1% þeirra ætla að auka útgjöld til markaðsmála á þessu ári, en 18,6% fyrirtækja ætla að draga saman seglin í þeim efnum.
Niðurstöður sömu könnunar fyrir ári voru mun neikvæðari.