Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku nam rúmum 4,4 milljörðum króna, sem er yfir meðaltali síðustu tólf vikna (4.277 milljónir króna). Þetta kemur fram á vef Þjóðskrár Íslands .

Alls voru gerðir 127 kaupsamningar í síðustu viku og voru 90 samningar um eignir í fjölbýli, 27 samningar um sérbýli og 10 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Meðalupphæð á hvern samning nam 34,7 milljónum króna.