Neytendur hafa eytt að jafnaði 3,8% meira til kaupa á dagvöru í hverjum mánuði frá janúar til september á þessu ári miðað við sama tímabil í fyrra. Í mánaðarlegum samanburði milli ára, samkvæmt smásöluvísitölu SVÞ og IMG, kemur fram að neytendur vörðu tæpum 5% meira í kaup á dagvöru í september síðastliðnum samanborið við september á síðasta ári. Samanburðurinn miðast við fast verðlag.

Áfengissmásalan reyndist 8,0% meiri á sama tímabili og sala lyfjaverslana jókst um 1,5% miðað við september í fyrra. Þessar tölur miðast við fast verðlag. Verð dagvara hækkaði um 1,3% í mánuðinum skv. Hagstofu Íslands, áfengisverð hækkaði um 0,5% og lyfjaverð um 3,7% á milli ára.

Hækkun á meðalgildi síðustu 3.mánaða á föstu verðlagi samanborið við sama tímabil fyrir ári var frá 3,5 til 4,8 prósent eftir verslunargreinum.

Smásöluvísitala SVÞ-IMG er reiknuð af IMG samkvæmt upplýsingum sem berast beint frá fyrirtækjunum og ÁTVR. Miðað er við að a.m.k. 80% af veltu í greininni skili sér með þessum hætti. Venjulega er þetta hlutfall þó nokkuð hærra.

Smásöluvelta ÁTVR í áfengi er leiðrétt með viðkomandi verðvísitölu úr neysluverðs-vísitölu Hagstofunnar og lyf sömuleiðis með viðkomandi verðvísitölu fyrir lyf og lækningavörur.