Viðskipti með skuldabréf í Kauphöllinni námu 9,3 milljörðum króna í dag. Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,3%.

GAMMAi: Verðtryggt lækkaði um 0,5% í 6 milljarða viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt lækkaði um 0,1% í 3,3 milljarða viðskiptum.

Mesta verðbreytingin var á íbúðabréfum í flokki HFF 24 sem lækkuðu um 0,64% í 1,4 milljarða viðskiptum. Hækkaði ávöxtunarkrafa skuldabréfaflokksins um ellefu punkta.