Samkvæmt nýjustu tölum
The Independent
er meirihluta gegn sjálfstæði landsins. Samkvæmt könnunum sem prófessor John Curtice við Strathclyde háskólann hefur unnið úr styðja 43 prósent Skota sjálfstæði en 57 prósent eru gegn því.
Þrátt fyrir harða baráttu milli þeirra sem styðja sjálfstæði og þeirra sem leggjast gegn því virðast tölurnar lítið hafa breyst síðan á undanförnum mánuðum. Fyrir jól í fyrra studdu 40 prósent skota sjálfstæðisbaráttuna og hafði þeim fjölgað upp í 42-44 prósent í mars, en tölurnar virðast hafa staðið í stað síðan þá.
Kosið verður um sjálfstæði Skotlands þann 18. september næstkomandi.