Fulltrúar stjórnarflokkanna í fjárlaganefnd Alþingis leggja til að Icesave-samningurinn verði samþykktur. Þetta kom fram í hádegisfréttum RÚV.
Umsögn fulltrúa stjórnarflokkanna verður líklegast dreift á Alþingi í dag en umræða um frumvarpið er á dagskrá á miðvikudaginn.
Fram kom í frétt RÚV að von er á þremur álitum frá minnihluta fjárlaganefndar, sem enn er unnið að.