FL Group hefur áhuga á að fá Hannes Smárason í stjórn Finnair, en félagið á 22,4% hlut í finnska flugfélaginu. Finnair greindi frá þessu í dag en sendi síðan frá sér aðra tilkynningu þess efnis að hlutahafar sem samtals fara með 60% eignarhlut vilja endurkjósa núverandi stjórn.

Í tilkynningunni segir að áhugi sé á meðal hlutahafanna að Christoffer Taxell verði árfram stjórnarformaður Finnair.