Félagsmenn allra aðildarfélaga Samiðnar samþykktu kjarasamning Samiðnar við Samtök atvinnulífsins utan Félags járniðnaðarmanna á Ísafirði sem felldu samninginn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Þar kemur fram að samningar Samiðnar við Bílgreinasambandið, Samband garðyrkjubænda og meistarafélög í byggingariðnaði innan Samtaka iðnaðarins hafi einnig verið samþykktir.

Samningur Samiðnar við Meistarafélag pípulagningamanna var felldur.