Samfylkingin hefur náð góðu forskoti á næst stærsta flokkinn, Sjálfstæðisflokk, og munar um 8 prósentustigum á milli flokkanna. Þetta kemur fram í nýrri könnun Fréttablaðsins sem gerð var í gær, 7. maí, en tæplega 53% tóku afstöðu.
Vinstri græn eru nú þriðji stærsti flokkurinn með tæp 11% og Viðreisn er fjórði stærsti með 8,3%. Píratar og Miðflokkur eru svipaðir að stærð, 7,5% og 7,3%. Loks mælist Sósíalistaflokkurinn stærri en Flokkur fólksins, með 3,1% á móti 2,8%.
Loks mælast Framsóknarflokkurinn og Kvennaframboðið með 2,5% hvor, og Borgin okkar Reykjavík, framboð Sveinbjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur fyrrverandi oddvita Framsóknar og flugvallarvina er með 1%. Loks fengju Alþýðufylkingin, Karlalistinn og Höfuðborgarlistinn minna en 1% fylgi.
Enginn þeirra 796 sem náðist í, af þeim 1050 manns sem hringt var í nefndu Frelsisflokkinn eða Íslensku þjóðfylkinguna. Svarhlutfallið í könnuninni var 75,8, en afstöðu tóku 52,9%. 11,4% sögðust ekki ætla að kjósa eða skila auðu, 17,6% sögðust óákveðin og 18,0% vildu ekki svara.
Hér má lesa eldri fréttir um fylgi flokkanna í borginni:
- 7. maí 2018 - Píratar fengju fjóra menn
- 27. apríl 2018 - Meirihlutinn með minnsta mögulega mun
- 11. apríl 2018 - 43% óánægð með Dag B. Eggertsson
- 31. mars 2018 - Flestir vilja Dag áfram
- 29. mars 2018 - Samfylkingin á siglingu
- 15. mars 2018 - Ný könnun: Meirihlutinn heldur
- 22. febrúar 2018 - Ný könnun: Samgöngumál ráða för
- 10. febrúar 2018 - Björt framtíð úr 15,6% í 2,4%
- 7. febrúar 2018 - Sjálfstæðisflokkur bætir við sig
- 8. júní 2017 - Meirihlutinn rígheldur
- 7. júní 2017 - Könnun á fylgi flokkanna
Hér má lesa skoðanadálka, leiðara og pistla í Viðskiptablaðinu um málefni Reykjavíkurborgar:
- 7. maí 2018, Týr - Glötuð tækifæri
- 27. apríl 2018, Leiðari - Glansmynd Reykjavíkur
- 26. apríl 2018, pistill - Engar eyðsluklær í borgarstjórn
- 19. apríl 2018, pistlar - Stefnufesta og skýr framtíðarsýn í Reykjavík
- 20. janúar 2018, Huginn og Muninn - Slæm vika fyrir Dag