Meistarahús og EGS einingar ehf. á Suðurnesjum hafaskrifað undir samning um kaup Meistarahúsa á steypueiningum í 64 íbúðir við Stekkjarbraut og Akurbraut í Innri-Njarðvík. Um er að ræða samning í námunda við 150 milljónir, en EGS hefur nýlega reist verksmiðju til að framleiða einingarnar þar sem um 20 manns vinna og er ráðgert að stækka verksmiðjuna síðar á árinu.

Í frétt Víkurfrétta er bent á að mMikil aukning hefur verið á því að nota einingarnar við húsabyggingar og umsvif fyrirtækisins munu aukast jafnt og þétt ef mið er tekið af núverandi eftirspurn.

Auk einingaframleiðslunnar er EGS með verktakafyrirtækið SEES, steypustöðina Steypuna og Malbikunarstöð Suðurnesja á sínum snærum og er starfsmannafjöldi þar nú um 60 og er búist við enn meiri fjölgun á næstu mánuðum segir í frétt Víkurfrétta.