Stjórn Meiðs ehf. hefur samþykkt að breyta nafni félagsins úr Meiður ehf. í Exista ehf. Með stefnumótun félagsins sem fram fór á síðasta ári var lagður grunnur að frekari vexti félagsins og í kjölfarið hefur félagið aukið umsvif sín með ráðningu sex starfsmanna og opnun nýrrar skrifstofu að Tjarnargötu 35 í Reykjavík. Tilgangur nafnabreytingarinnar er að aðlaga ásýnd félagsins að breyttum áherslum en gert er ráð fyrir að framtíðarvöxtur þess verði að mestu leyti erlendis segir í tilkynningu félagsins.