Memento hlaut verðlaun fyrir bestu tækninýjungina á ráðstefnunni Finovate og hlaut hin eftirsóttu verðlaun ,, Best of Show". Finovate er ein þekktasta og virtasta ráðstefna heims um tækninýjungar í fjármálatengdum hugbúnaði. Eingöngu framsæknustu fyrirtækin á þessu sviði fá að taka þátt og var Memento að taka þátt í fyrsta skipti.

Ný lausn Memento leggur sérstaka áherslu á tengingu samfélagsmiðla við banka í gegnum ýmis greiðslutilfelli. Fjármálahugbúnaðarfyrirtækið Memento gefur einnig út smáforritið Kass. Fyrirtækið hlaut þó ekki verðlaunin fyrir Kass smáforritið heldur þróaðri vöru sem Memento þróaði fyrir banka almennt.

Memento vinnur að því að brúa bilið á milli samfélagsmiðla og banka með nýrri tegund greiðsluþjónustu. Memento þróar alhliða greiðsluumhverfi sem leggur áherslu á að auðvelda greiðslur á milli aðila, sérstaklega þegar kemur að sameiginlegum útgjöldum, peningasöfnunum og öðrum hefðbundnum greiðslum.