Hagnaður hugbúnaðarfyrirtækisins Men & Mice nam 2,8 milljónum dala eða 339 milljónum króna í fyrra og jókst um 26% milli ára í dölum talið.

Tekjur námu rúmum milljarði króna og jukust um 13% í dölum. Eignir námu 910 milljónum í árslok og eiginfjárhlutfall var 66%.

Greidd laun námu 302 milljónum og ársverk voru 30. Rúmar 300 milljónir voru greiddar í arð í fyrra.