Fjártæknifyrirtækið Meniga hefur tryggt sér eins og hálfs milljarðs króna fjármögnun. Fjármögnunin var leidd af hollenska fjárfestingasjóðnum Velocity Capital Fintech Futures og íslenska fjárfestingasjóðnum Frumtak Ventures. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Aðrir þátttakendur voru sænski fjárfestingarsjóðurinn Industrifonden, breski sjóðurinn UK Future Fund og bankarnir UniCredit, Swedbank, BPCE og Íslandsbanki. Þessir bankar og fjárfestingasjóðir eiga það sameiginlegt að hafa verið lengi í hópi eigenda og viðskiptavina Meniga.

„Við höfum frá upphafi verið sannfærð um að Meniga hafi mjög spennandi vaxtarmöguleika á sviði fjártækni.  Meniga hefur fest sig í sessi sem öflugur brautryðjandi í fjártæknilausnum fyrir helstu banka um allan heim, en sá markaður er nú í örum vexti sem aldrei fyrr,“ er haft eftir Svönu Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra Frumtak Ventures.

Eftirspurn eftir stafrænni bankaþjónustu hefur aukist verulega frá því að heimsfaraldurinn hófst. Bæði hefur faraldurinn valdið því að fólk um allan heim þurfi á meiri aðstoð við heimilisfjármálin sín auk þess sem viðskiptavinir hafi minni aðgang að útibúum vegna fjöldatakmarkana.

Sölu- og þjónustuteymi Meniga verður því eflt til að mæta aukinni eftirspurn á heimsvísu. Áhersla verður lögð á vöruþróun og nýsköpun. Sérstaklega verður horft til þróunar og markaðssetningar á vörum þar sem fjártækni og umhverfismál koma saman. Á meðal nýrra vara Meniga er umhverfisvaran Carbon Insight en hún gerir bönkum mögulegt að aðstoða viðskiptavini sína í umhverfismálum. Með Carbon Insight geta notendur netbanka séð áætlað kolefnisspor á einkaneyslu sinni og gripið til aðgerða til lágmarka það. Vörunni er ætlað að hjálpa fólki um allan heim að berjast við loftslagsbreytingar.

„Við erum mjög ánægð með áframhaldandi stuðning fjárfesta. Nýtt fjármagn mun gera okkur kleift að markaðssetja vörur okkar til væntanlegra viðskiptavina um allan heim. Carbon Insight er gott dæmi um vöru sem mikill áhugi er á en að minnsta kosti fjórir bankar í jafnmörgum löndum munu taka hana í gagnið á þessu ári og við sjáum vaxandi eftirspurn eftir henni hjá bönkum um allan heim,“ segir Georg Lúðvíksson, forstjóri og meðstofnandi Meniga.

Meniga var stofnað árið 2009 og eru starfsmenn um 160. Hugbúnaður Meniga hefur verið innleiddur hjá yfir 160 fjármálastofnunum og er aðgengilegur yfir 90 milljónum einstaklinga í 30 löndum. Meniga er með skrifstofur í Kópavogi, London, Stokkhólmi, Varsjá, Barcelona, Singapore og New York.