Santander bankinn hefur ráðið Meniga til að veita viðskiptavinum sínum persónulega fjármálaþjónustu, en viðskiptavinirnir munu fá aðgang að heimilisfjármálahugbúnaði Meniga.

Um er að ræða stærsta samning sinnar tegundar. Santander bankinn er einn sá stærsti á evrusvæðinu og hefur einnig ágætis markaðshlutdeild í 10 öðrum löndum Evrópu auk Ameríku.

Hugbúnaður Meniga er nú í notkun hjá um 25 milljón manna í 16 löndum en um samning félagsins við Santander má lesa hér .