Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Meniga hefur opnað skrifstofur í Singapúr og Barcelona. Þeim er ætlað að anna aukinni eftirspurn eftir vörum og þjónustu fyrirtækisins í Suðaustur-Asíu og Suður-Evrópu. Meniga er í dag með skrifstofur í Reykjavík, Stokkhólmi, Helsinki, Varsjá og Lundúnum, en félagið sem var stofnað árið 2009 er í dag með um 160 starfsmenn.

Hugbúnaður Meniga hefur verið innleiddur hjá yfir 70 fjármálastofnunum og er hann aðgengilegur yfir 65 milljónum manna í 30 löndum. Meðal viðskiptavina Meniga eru margir stærstu banka heims, þeirra á meðal Unicredit, Swedbank, BPCE, Santander, Commerzbank, ING Direct og Intesa Sanpaolo.

Georg Lúðvíksson , forstjóri og einn stofnenda Meniga, segir mikla eftirspurn eftir þjónustu fyrirtækisins þar sem bankar um allan heim vilji gera notendaupplifun sína persónulegri.

„Bankar og önnur fjármálafyrirtæki eru í síauknum mæli að nýta gögn á skynsamlegan hátt til að bjóða viðskiptavinum sínum mun betri þjónustu í gegnum netbanka og snjallsímaapp. Lausnir Meniga gegna þar mikilvægu hlutverki.”

Kanika Mittal , sem mun leiða sölustarf Meniga í Singapore, segir mikla eftirspurn í Asíu eftir bankaþjónustu sem geti keppt við notendaupplifun leiðandi snjallsímaforrita svo sem Alipay og WeChat.

„Viðskiptavinir vilja bankaþjónustu sem skilur þarfir þeirra og einfaldar þeim lífið. Ný skrifstofa Meniga undirstrikar þá trú sem fyrirtækið hefur á Singapore sem miðstöð fjártækni í  Asíu. Við hlökkum til að byggja upp sterkt teymi í Asíu sem mun leika lykilhlutverk í starfsemi Meniga.”

Þess má geta að í febrúar síðastliðnum var tilkynnt um útgáfu nýs apps á vegum UOB bankans sem hefur höfuðstöðvar sínar í Singapore. UOB er fyrsti bankinn í Asíu sem nýtir lausnir Meniga.