llugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra og Lárus Rafn Blöndal forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands hafa undirritað  fjóra samninga um fjárframlög á fjárlögum 2013.

Með samningunum eru samskipti ráðuneytisins við ÍSÍ formfest hvað fjármál varðar, segir á vef ÍSÍ. Þá er einnig orðið við almennum tilmælum Ríkisendurskoðunar um að gerðir séu samningar um fjárframlög á fjárlögum.

Um er að ræða samning um rekstur ÍSÍ að fjárhæð 103,7 milljónir króna, stuðningur við starfsemi sérsambanda ÍSÍ að fjárhæð 70 milljónir króna, samningur um ferðasjóð íþróttafélaga að fjárhæð 70 milljónir króna og samningur um afrekssjóð ÍSÍ að fjárhæð 55 milljónir króna