Menntamálaráðuneytið hefur farið þess á leit við mannvirkjasvið Fjarðabyggðar að þrír skólastjórabústaðir í sveitarfélaginu verði verðmetnir með hugsanlega sölu í huga.   Þarna er um að ræða skólastjórabústaði að Skólavegi 75 á Fáskrúðsfirði, Lambeyrarbraut 8 á Eskifirði og Breiðabliki 11 á Norðfirði.

Íbúðarhúsin eru í sameiginlegri eigu ríkisins og sveitarfélagsins Fjarðarbyggðar. Er eignarhlutur sveitarfélagsins í bústöðunum 25% og 75% hlutur er í eigu menntamálaráðuneytisins.