Náttúruminjasafn Íslands áætlar að opna sýningu í Perlunni á næsta ári í tengslum við 100 ára afmæli fullveldis Íslands. Skrifað var undir samkomulag í Perlunni í dag sem tryggir safninu sýningaraðstöðu á nýbyggðri annarri hæð byggingarinnar að því er kemur fram í fréttatilkynningu.

Samkomulagið undirrituðu Hilmar J. Malmquist forstöðumaður Náttúruminjasafns Íslands og Agnes Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri Perlu norðursins að viðstöddum Kristjáni Þór Júlíussyni mennta- og menningarmálaráðherra og stjórn Perlu norðursins.

Hilmar J. Malmquist forstöðumaður Náttúruminjasafns Íslands segir undirritun samningsins vera mjög merk tímamót í sögu Náttúruminjasafns Íslands.

„Í fyrsta skipti síðan höfuðsafnið var sett á laggirnar árið 2007 stefnir í að safnið fái aðstöðu til eigin sýningahalds. Nú getur Náttúruminjasafnið loksins sinnt einu af sínum meginhlutverkum sem er að miðla til almennings upplýsingum með sýningahaldi um náttúru Íslands, náttúrusögu, nýtingu náttúruauðlinda og náttúruvernd. Húsnæðið er frábært og hér blasa við töfrar íslenskrar náttúru allt um kring — fagur fjallahringur, hraunbreiður, háhitasvæði, eldfjöll, hafið og jöklar,“ segir Hilmar. „Þetta tækfæri sem Perla norðursins býður Náttúruminjasafninu upp á er afar mikilvægt og þakkarvert. Það verður þó að hafa það í huga að þátttaka okkar í Perluverkefninu leysir ekki húsnæðisþörf höfuðsafnsins undir rannsóknir, skrifstofur og sýningahald til framtíðar.“

Einstakur staður til að fræðast um náttúru Íslands

Agnes Gunnarsdóttir framkvæmdastjóri Perlu norðurins segir gleðilegt að Náttúruminjasafnið Íslans og náttúrusýning Perlu norðursins verði undir sama þaki. „Náttúruminjasafnið er eitt af okkar höfuðsöfnum og því mikið fagnaðarefni að það fái loks sýningarastöðu sem því sæmir á 100 ára afmæli fullveldis Íslands,“ segir Agnes. „Með því að staðsetja sýningu safnsins hér í Perlunni er hægt að tengja hana náttúrusýningu Perlu norðursins. Þannig verður Perlan að einstökum stað fyrir skólabörn, íbúa landsins og ferðafólk til að kynnast og fræðast um það náttúruundur sem Ísland er,“ segir Agnes.