Vodafone hefur sent frá sér tilkynningu vegna notkunar vefsíðunnar www.thevikingbay.org á vörumerki Vodafone.

Yfirlýsingin er svo hljóðandi:

„Umrædd notkun á vörumerki Vodafone er í óþökk fyrirtækisins. Vodafone hefur ítrekað óskað eftir því að vörumerkið verði fjarlægt af vefsíðunni en án árangurs. Verði ekki orðið við þeim óskum mun Vodafone kæra stjórnendur síðunnar til lögreglu fyrir athæfið."