Reuters greina frá því í dag að búist er við því að Merrill Lynch losi sig við starfsmenn bæði í Evrópu og Bandaríkjunum sem sinnt hafa orkuviðskiptum sjóðsins.

Merrill Lynch tilkynntu á dögunum að þeir hyggðust fækka starfsmönnum um 2900 eftir að hafa tapað stórfé, eins og fjallað hefur verið um .

Reuters hefur eftir heimildarmönnum sínum að fækka eigi orkufjárfestum sjóðsins (e. energy trader) um 10, fimm í Evrópu og fimm í Bandaríkjunum.