N1 hefur hækkað um 1,8% það sem af er degi í 208 milljón króna viðskiptum. Icelandair hefur hækkað um 1,15% 1,6 milljarða viðskiptum og Marel um 0,81% í 250 milljóna viðskiptum.

Hagar hafa lækkað mest, eða um 1,38% í tæplega 200 milljón króna viðskiptum. Önnur félög hafa annað hvort lækkað eða staðið í stað í dag.

Úrvalsvísitalan hefur hækkað um 0,39% það sem af er degi.