Nú þegar árið 2015 er liðið og nýtt ár er að ganga í garð er ekki úr vegi að rifja upp mest lesnu Fólk-fréttir á vb.is á árinu.

  1. Björn Ingi hættir hjá Wow air
    Björn Ingi Knúts­son, fram­kvæmda­stjóri flugrekst­ar­sviðs Wow air, sagði starfi sínu lausu hjá Wow air
  2. Nýir starfsmenn hjá Logos
    Logos lögmannsþjónusta réð inn nýjan skrifstofustjóra, forstöðumann fjárhagsdeildar og tvo fulltrúa.
  3. Ingvar hættur hjá Landsbankanum
    Ingvar H. Ragnarsson sagði upp starfi sínu hjá Landsbankanum en hann hafði starfað sem forstöðumaður eignastýringar bankans í tæp tvö ár.
  4. Erla Ósk ráðin til Icelandair hótela
    Erla Ósk Ásgeirsdóttir var ráðin forstöðumaður starfsmanna- og gæðasviðs Icelandair hótela.
  5. Úr fjármálum í markaðsfræði
    Þyrí Dröfn Konráðsdóttir var ráðin markaðsstjóri N1  en hún hafði starfað sem sérfræðingur á markaðssviði N1